Fundargerðir
Aðalfundur Félags lóðareigenda Berjamóa 19. 07. 2026
Fundargerð.
Formaður félagsins, Emil Einarsson setti fundinn kl. 16.00 og kynnti dagskrá, enn fremur að samkvæmt mætingu teldist fundurinn löglegur.
Stungið upp á Emil sem fundarstjóra og Guðmundi Eiríks sem ritara og var það samþykkt.
Stungið upp á Emil sem fundarstjóra og Guðmundi Eiríks sem ritara og var það samþykkt.
1. Skýrsla stjórnar, formaðurinn félagsins kynnti skýrslu stjórnar, hún verður birt á heimasíðu félagsins.
2. Gjaldkerinn Ólafur Magnússon kynnti reikninga félagsins, þar kom meðal annars fram að staðan er góð og innheimta gengi vel og voru þeir samþykktir án athugasemda.
(Reikningar birtir á heimasíðu)
(Reikningar birtir á heimasíðu)
3. Kosning stjórnar, stjórnarmenn gáfu allir kost á sér áfram og voru þeir endurkjörnir.
Stjórnina skipa:
Emil Einarsson formaður. (lóð 12)
Guðmundur Ásgeir Eiríksson ritari. (lóð10)
Ólafur Magnússon gjaldkeri. (lóð17)
Guðmundur Gíslason meðstjórnandi. (lóð7)
Stjórnina skipa:
Emil Einarsson formaður. (lóð 12)
Guðmundur Ásgeir Eiríksson ritari. (lóð10)
Ólafur Magnússon gjaldkeri. (lóð17)
Guðmundur Gíslason meðstjórnandi. (lóð7)
4. Kynnt könnun vegna kaupa og uppsetningar á rafmagnshliði.
Emil kynnti þrjú tilboð sem bárust, sem voru á bilinu kr. 1.000.000.- til 1.200.000.- ,nokkrar umræður sköpuðust um málið, kanna þarf betur kostnað við að leggja rafmagn að hliðinu og rekstrarkostnað, jafnvel að hafa myndavél við hliðið útfærslu á því og kostnað.
Eins hvernig og hvaða undirvinnu þarf við uppsetningu og kostnað við það.
Samþykkt var að setja upp hlið, en að undangenginni nánari könnunnar á kostnaði.
Samþykkt var að setja upp hlið, en að undangenginni nánari könnunnar á kostnaði.
Einnig var rætt um hvernig ætti að ganga frá neðra hliði sem er alltaf opið. Fundarmenn voru sammála um að loka þurfi þessu hliði annað hvort alveg eða setja efra hliðið sem er núna í stað þess gamla sem er ónýtt, læsa því og hafa lyklabox þar við með lykli að hliðinu. Jón sem á lóðirnar við umrætt hlið er samþykkur báðum útfærslum.
Samþykkt að kanna betur lausnir á þessu máli.
Samþykkt að kanna betur lausnir á þessu máli.
5. Önnur mál. Viðgerð á girðingu, Guðmundur Gíslason benti á að það væri betri kostur að setja staura úr járni í stað þeirra sem væru ónýtir.
Halla Þórisdóttir kom með hugmynd um að setja upp skilti með korti af lóðunum (vegvísi) við hliðið til að gestir og iðnaðarmenn ættu auðveldara að rata um svæðið.
Einhverjir töldu ekki þörf á þessu en samþykkt var að kanna málið
Guðmundur Eiríksson benti á og kynnti heimasíðu félagsins.
Rætt var um að halda árlegt grill en það kom í ljós að fólk er mjög upptekið þannig að það bíður betri tíma.

Tilmæli til lóðareigenda um að þeir komi sér upp klöppum til að slökkva gróðurelda.
Fleira var ekki tekið fyrir og fundi slitið kl.17.00.
Guðmundur Ásgeir Eiríksson fundarritari (lóð10)